Þrír lögfræðingar og þrír verkfræðingar ætluðu með lest á ráðstefnu. Á brautarstöðinni keyptu lögfræðingarnir þrír hver sinn miða, en verkfræðingarnir þrír bara einn.

“Hvernig ætlið þið þrír að ferðast á einum miða?, spyr einn lögfræðinganna.

”Við skulum bíða og sjá til“, svarar einn verkfræðinganna.

Þeir fara um og lögfræðingarnir setjast hver í sitt sæti en allir verkfræðingarnir troða sér inn á salernið og læsa að sér. Skömmu eftir að lestin leggur af stað gengur lestarstjórinn um og safnar saman farmiðum. Hann bankar á dyrnar á salerninu og segir: Miðann, takk. Örlítil rifa opnast og handleggur réttir miðann út um rifuna. Lestarstjórinn tekur miðann og heldur áfram.

Lögfræðingarnir sjá þetta og fannst þetta að sönnu snjöll hugmynd. Að ráðstefnu lokinni hugðust þeir feta í fótspor verkfærðinganna, kaupa bara einn miða og spara pening. Þegar þeir koma á brautarstöðina kaupa þeir einn miða en sjá sér til mikillar furðu að verkfræðingarnir kaupa alls engan miða.

”Hvernig ætlið þið eiginlega að ferðast miðalausir, “ spyr einn lögfræðinganna.

Við skulum sjá til, svarar einn verkfræðinganna.

Þegar þeir koma um borð troðast lögfræðingarnir inn á salerni og verkfræðingarnir þrír inn á annað við hliðina.

Skömmu síðar laumast einn verkfræðingurinn út af salerninu, bankar hjá lögfræðingunum og segir:

”Miðann takk? "