Heimspekingur, stærðfræðingur og Sibbi lúði dóu.Á móti þeim tók Kölski.“Því miður strákar mínir er Himnaríki troðfullt í augnablikinu og aðeins eitt pláss eftir þar.Til þess að ákveða hver fer þangað ætla ég að biðja ykkur hvern og einn um að leggja fyrir mig spurningu og ef ég get svarað henni þá farið þið til helvítis ef ég get ekki svarað henni farið þið til Himna.Allir voru samþykkir þessu.Heimspekingurinn spurði Kölska ”Hvert rita Sókratesar inniheldur yfirmesta textann um heimspeki?“
Kölski smellti fingrunum og í því birtist bók fyrir framan hann. Hann rétti heimspekingnumbókina sem samþykkti að þetta væri rétta bókin.”Farðu þá til helvítis“ sagði Kölski og smellti fingrunum.
Stærðfræðingurinn ákvað að vera næstur og spurði Kölska hver væri erfiðasta stærðfræðiformúla í heimi. Aftur smellti Kölski fingrunum og enn önnur bók birtist. Hann rétti stærðfræðingnum bókina sem samþykkti með semingi að bókin innihéldi erfiðustu stærðfræðiformúlu í heimi.Enn og aftur smellti Kölski fingrunum og stærðfræðingurinn hvarf til helvítisa.Nú er komið að Sibba lúða.
Hann biður Kölska um stól.Kölski kemur með stól.Sibbi lúði biður Kölska um að bora nokkur göt í setuna á stólnum.Hann gerir það.Nú sest Sibbi lúði á stólinn og rekur rosalega við. Hann spyr Kölska: ”Út um hvaða gat kom prumpið?“
Kölski svarar um leið að það hafi verið 3ja gat frá hægri.
”Vitlaust“ sagði Sibbi lúði,”Það kom út úr rassgatinu á mér!"
og Sibbi lúði komst til himna.