þennann brandara fann ég í sjónvarpsdagskránni og fannst hann góður og vildi deila honum með ykkur.


Jón var á ferðalagi um Asíu og sá Þar götusala sem að seldi mjög framandi austurlensk djásn og keypti hann þar nokkrar fallegar nælur. Þegar að hann kom heim valdi hann stærstu og fallegustu næluna og gaf tengdamóður sinni hana til að halda henni góðri.
Tengdó var mjög hrifin af nælunni og var með hana alltaf þegar hún gat og sagði alltaf:“sjáið hvað Jón er góður við tengdamóður sína.
Það hefðu ekki allir tengdasynir gefið tengdamóður sinni svona fallega nælu.
Eitt kvöld var henni boðið í stóra og mikla veislu þar sem komu margir útlendir sendifulltrúar.
Tengdó sá nú tækifæri til að sýna kínverskum sendifulltrúum næluna og fá þýðingu á þeim kínversku táknum sem að á henni voru.
Hún króaði af einn kínverjan útí horni og sýndi honum næluna og hvort hann gæti þýtt það sem á henni var.
Hann var efins og vildi helst ekki segja henni hvað stóð á henni en gafst þó upp að lokum og sagði á góðri íslensku ”Í fyrsta lagi er nælan á hvolfi og í öðru lagi stendur á henni ‘Ríkisstjórnin í Hong Kong. Opinber hóra. Þriðji flokkur.’"
——