Nokkrir góðir Hafnfirðingur tók sér far með leigubíl frá Reykjavík til Hafnarfjarðar. Leigubílstjórinn reyndi að koma á vitrænum samræðum og spurði: ,,Veistu hver er ekki bróðir minn, ekki systir mín en samt barn foreldra minna?\“
Hafnfirðingurinn hugsaði sig lengi um en svaraði síðan neitandi.
,,Nú, auðvitað ég sjálfur!\” skríkti leigubílstjórinn og Hafnfirðingurinn kinkaði kolli og klóraði sér.
Þegar hann kom heim í Hafnarfjörð spurði hann konuna sína sömu spurningar:
,,Heyrðu, Dúna mín, veistu hver er ekki bróðir minn, ekki systir mín en samt barn foreldra minna?\“
,,Nei, Siddi, vinur. Það veit ég ekki, hver er það?\” svaraði eiginkonan áhugasöm.
,,Það er einhver leigubílstjóri í Reykjavík,\“ sagði þá Hafnfirðingurinn, kinkaði kolli og klóraði sér!


——————————————— ———————

Ungur maður sem réð sig sem leiðbeinanda í gagnfræðaskóla var orðinn ansi þreyttur á nemendum sínum eftir fyrstu vikuna. Í einum tímanum, þegar honum þótti börnin sína takmarkaða færni, sagði hann: „Mig langar að biðja alla þá sem eru heimskir að standa upp.“ Enginn stóð upp og eftir mínútu þögn sagði leiðbeinandinn: „Hvað er að ske, eruð þið öll vitringar?“ Þá stóð einn ungur piltur upp og kennarinn spurði: „Svo þú telur þig heimskan?“
Drengurinn svaraði: „Nei, ég bara vorkenndi þér að standa þarna einn.“

——————————————— ———————

Jónas setti upp verksmiðju í heimabæ sínum og fór að ráða starfsmenn. Hann auglýsti í staðarblaðinu og tók fram að hann ætlaði bara að ráða kvænta karlmenn. Kvenréttindafrömuður bæjarins sá þessa auglýsingu og fannst rétt að tala við Jónas tveim hrútshornum. Hún hringdi í hann og spurði hann \”Af hverju ætarðu að ráða bara kvænta karlmenn? Er það vegna þess að þú telur konur aumari, heimskari,
geðstirðari … eða hvað er málið? \“Nei, alls ekki, kona góð,\” sagði Jónas. \“Það er vegna þess að þeir kunna að hlýða skipunum, eru vanir að láta traðka á sér, vita hvenær þeir eiga að halda kjafti og fara ekki í fýlu þegar ég öskra á þá.\”

——————————————– ———————-

Maður nokkur var á gangi meðfram ströndinni þegar hann rekst á flösku í fjöruborðinu. Maðurinn tekur upp flöskuna og þurkar af henni, og upp kemur þessi rosa andi og segir \“Fyrir að frelsa mig mun ég veita þér eina ósk\” Maðurinn sem er hamingjusamlega giftur og vel stæður ákveður að gera eitthvað gott fyrir Ísland og segir \“ég vill að þú byggir varanlega brú á milli Íslands og Evrópu\” Andinn missti gjörsamlega andlitið og sagði síðan\“ ertu eitthvað verri, ég mundi þurfa að byggja risa stólpa sem þyrftu að ná alla leið niður á fast berg og ég þyrfti að safna milljónum tonna af sementi og ég mundi eyða restinni af æfi minni við að viðhalda þessu. Ég er hræddur um að þú verðir að óska þer einhvers annars\” Þá segir maðurinn \“Hmmm gefðu mér þá visku til að skilja konur\” Þá segir andinn \“Eina akrein eða tvær\”!!!

————————————————— —————

Kona fór til læknis og sagði honum að hún gæti ekki fengið manninn sinn til að gera það með henni. Læknirinn lætur hana fá pillur og segir henni að gefa honum eina með kvöldmatnum ef hún vilji fá kynlíf. Strax sama kvöld læðir hún einni pillu í matinn hans og það er eins og við manninn mælt, þau gerðu það um kvöldið og það var jafnvel betra heldur en það hafði verið. Næsta kvöld ákvað hún að gefa honum fjórar pillur, það kvöld var ótrúlegt, hún hafði aldrei upplifað annað eins. Kvöldið eftir gaf hún honum átta pillur, hann stökk á hana strax eftir matinn og hætti ekki fyrr en upp undir morgun. Hún var svo ánægð að hún ákvað að gefa honum allar pillurnar næst, þannig að um kvöldið sturtaði hún úr pilluglasinu út í súpuna hjá honum. Tveim dögum seinna kemur sonur hennar til læknisins og segir, \“læknir, hvað gerðir þú eiginlega við pabba? Mamma er dáin, systir mín er ólétt, ég er að drepast í rassinum og pabbi hleypur um allt hús kallandi \”hérna kisi, kisi, kisi\“

——————————————- ———————–

FBI er með þrjá menn í atvinnuviðtali, þeir tala við þá einn í einu. Fyrsti maðurinn kemur inn og sest niður, FBI maðurinn spyr hann, \”elskarðu konuna þína?\“, maðurinn svarar að hann elski hana mjög mikið, \”elskarðu land þitt?\“ spyr FBI maðurinn þá, \”já það geri ég\“ svarar hann, \”hvort elskarðu meira konuna þína eða land þitt?\“ spyr FBI gaurinn næst, \”land mitt\“ svarar maðurinn. \”Allt í lagi\“ segir FBI maðurinn, \”við komum með konuna þína, farðu nú inn í næsta herbergi með þessa byssu og dreptu hana\“ Maðurinn fer inn í herbergið, allt er hljótt í um fimm mínútur, hann kemur aftur með bindið sitt laust, allur sveittur og stressaður, hann leggur byssuna á borðið og fer. Annar maðurinn kemur nú inn og sest niður. Viðtalið fer á sama veg. Nú er komið að þriðja gaurnum, viðtalið er eins, gaurinn fer inn í herbergi með byssuna og allt er hljótt í fimm mínútur, þá allt í einu heyrast nokkrir skothvellir og strax á eftir mikill hávaði og öskur. Maðurinn kemur út úr herberginu og FBI gaurinn spyr strax hvað hafi gerst, \”það voru bara púðurskot í byssunni þannig að ég varð bara að kyrkja hana\"
——