Maður nokkur situr við barinn og horfir á glasið sitt. Hann hefur ekki hreyft sig í tvo og hálfan tíma. Þá kemur að honum trukkabílstjóri, hrifsar af honum glasið og drekkur í botn.

Aumingja maðurinn byrjar að háskæla og trukkabílstjórinn verður vandræðalegur og segir: “Æ, fyrirgefðu, þetta var bara smá grín. Ég skal kaupa handa þér annað glas.”

“Það er ekki það,” vælir maðurinn. “Dagurinn í dag er versti dagurinn í lífi mínu. Fyrst svaf ég yfir mig og missti af mikilvægum fundi. Yfirmaðurinn varð brjálaður og rak mig. Þegar ég kem út úr fyrirtækinu, þá var búið að stela bílnum mínum. Löggan sagði að hún gæti ekkert gert, svo ég þurfti að taka leigubíl heim. Þegar leigubíllinn var farinn tók ég eftir því að ég hafði gleymt veskinu í bílnum. Og þegar ég kem inn, þá kem ég að konunni minni í rúminu með póstberanum.
Og núna, þegar ég var að hugsa um að binda endi á þjáningar mínar, þá kemur ÞÚ og drekkur eitrið mitt.”