AÐVÖRUN! LESIST STRAX. ÞETTA ER ALVARLEGT
OG SNERTIR ÞIG!

Ef þú færð sent umslag frá samtökum sem kallast “Ríkisskattstjóri” SKALT ÞÚ
EKKI OPNA ÞAÐ!!.

Þessi hópur manna (“Ríkisskattstjórahópurinn”, skammstafað RSK) er með stórt
svindl í gangi á þessum tíma árs á hverju ári.

Í bréfi þeirra krefja þeir þig um upplýsingar um tekjur, eignir og útgjöld í
þeim tilgangi að hafa af þér peninga sem þeir kalla ýmist “skatta” eða
“opinber gjöld” eða “álagningu”.

Þessa peninga segja þeir munu notaða til þess að standa undir nauðsynlegum
ríkisrekstri.
Það er lygi! Peningarnir fara í ýmis verkefni og bitlinga fyrir menn þessa
hóps, félaga og fjölskyldur þeirra og til fyrirtækja sem keppa við þitt
fyrirtæki og þrífast á ríkisstyrkjum, auk listamanna sem geta ekki selt
verkin sín.

Þessi samtök eru í tygjum við önnur samtök sem kallast “Sveitarfélög” sem
einnig stunda svindl af sama tagi og í samstarfi við RSK og hafa einnig haft
milljarða króna af saklausum almenningi.
Þessir blekkingamenn hafa blekkt peninga úr ótrúlegum fjölda heiðarlegra
íslanskra launþega og er ekki um neinar smáupphæðir að ræða!

EKKI LÁTA BLEKKJA ÞIG!
HENTU BRÉFINU!
SENDU ÞETTA BRÉF TIL ALLRA SEM ÞÚ ÞEKKIR!