Ágæti garðeigandi
Þetta bréf er sent til þín, því við vitum að garðurinn þinn er þitt
aðaláhugamál og nú er tími til að bera á.
Þetta er áburðarklúbbur, og það mun ekki kosta þig krónu að vera með.
Þegar þér berst þetta bréf, þá átt þú að fara í garð þess sem er efst á
listanum og skíta í garðinn hans.
Þar næst býrðu til 5 eins bréf og sendir til 5 vina þinna, sem þú veist
að eru garðáhugamenn og kunna að meta lífrænan garð.
Þú munt ekki móttaka neina peninga eða ávísun, en innan skamms - ef
keðjan slitnar ekki - munu 9216 einstaklingar koma og skíta í garðinn
þinn.
Ágóðinn kemur í ljós næsta sumar, þá færðu grænan, gróinn, fallegan garð
þér sjálfum til mikillar ánægju og nágrannarnir verða grænir af öfund.
P.s. Ef svo óheppilega vildi til að þú þjáist af hægðatruflunum, sendu
bréfið þá bara til nágrannans.Ekki slíta keðjuna….