Gömul hjón voru að horfa á Omega eitt kvöldið. Á dagskrá var einn af þessum
sjónvarps predikurum sem lækna allt og alla. Hann lítur í myndavélina Og
segir:
“Góðir áhorfendur, ég ætla nú að deila með ykkur gríðarlegum lækningarmætti mínum. Mig langar að biðja ykkur að standa upp, leggja aðra hönd á sjónvarpið Og hina höndina á þann líkamshluta sem þarfnast lækningar.” Gamla konan var búin að vera ansi slæm í maganum, svo hún stendur upp, leggur aðra hönd á sjónvarpið og hina á magann. Gamli maðurinn stendur líka upp, leggur aðra hönd á sjónvarpið og grýpur um typpið á sér með hinni.
Þá segir konan hans háðsk á svipinn: “Elli minn. Hann var að tala um að lækna þá sjúku, ekki reisa upp frá dauðum.”
það besta sem Guð hefur gefið mér……… eru börnin mín