Tíu skýringar sem hægt er að gefa þegar yfirmaðurinn kemur að manni sofandi við skrifborðið:


10. “Þær sögðu mér í blóðbankanum að þetta gæti gerst.”

9. “Þetta er bara kortérs orkublundur eins og sagt var frá á stjórnunarnámskeiðinu sem þú sendir mig á.”

8. “Vá! Ég gleymdi að setja tappann aftur á Tipp-exið. Þú hefur líklega komið rétt á elleftu stundu.”

7. “Ég var ekki sofandi! Ég var að íhuga verkefnaviðmiðin og úthugsa nýjan rannsóknarramma.”

6. “Ég var að prófa nýju slef-vörnina á lyklaborðinu mínu.”

5. “Ég var að framkvæma sérlega erfiða Jóga-æfingu til að losa mig við stereituvald sem orsakast af vinnu-umhverfi mínu. Hefur þú eitthvað á móti jógaiðkendum?”

4. “Fjárinn, af hverju varstu að trufla mig? Ég var rétt að finna lausnina á stærsta vandamálin fyrirtækisins.”

3. “Kaffivélin er biluð …”

2. “Það hefur einhver sett koffínlaust kaffi í vélina.”

1. “… í Jesú nafni, amen.”
.ZeLLa.