Ef þið hefðuð lagt 100.000 krónur í að kaupa hlutabréf Nortel fyrir einu ári væri verðmæti bréfanna í dag um 4.900 krónur.
Hefði sama fjárfesting verið lögð í Enron væri sú eign í dag um 1.650 krónur.
Hefðuð þið keypt bréf í World Com fyrir 100.000 krónur væri minna en 500 kall eftir.

Hefði peningurinn hins vegar verið notaður til að kaupa Thule-bjór fyrir einu ári hefði verið hægt að drekka hann allan og fara síðan með dósirnar í endurvinnslu og hafa um 21.400 krónur upp úr því.

Þegar ofangreint er athugað virðist vera vænlegur kostur fyrir fjárfesta að drekka stíft og endurvinna.

nokkuð góður punktur, eða hvað?
það besta sem Guð hefur gefið mér……… eru börnin mín