Eldri hjón komu nýlega inn á McDonalds og pöntuðu BigMac með gosi á tilboði. Þau skiptu öllu í tvennt, fengu aukaglas og skiptu gosinu á milli sín. Maðurinn byrjaði að borða en konan sat og horfði á.
Stúlka sem var að þrífa stóðst þetta ekki og spurði hvort hún mætti ekki gefa þeim annan skammt svo þau þyrftu ekki að skipta þessu á milli sín.
Gamli maðurinn svaraði: „Við erum búin að vera gift í 50 ár og við höfum alltaf deilt öllu á milli okkar. Við breytumst ekki úr þessu.“ Stúlkan spurði konuna næst hvers vegna hún borði ekki og gamla konan svaraði: „Hann er að nota tennurnar, það kemur að mér þegar hann er búinn.“