Nokkrir menn voru saman komnir til að spila póker. Meðal þeirra
var maður að nafni Guðmundur. Þegar líða tekur á kvöldið fara þeir
að tala um syni sína og eru flestir þeirra afar stoltir af sonum
sínum.

Þegar Guðmundur þarf að skreppa á klósettið byrja félagar hans að
pískra:
Aumingja Guðmundur, segir Halli. Sonur hans er hárgreiðslumaður og
hommi. Engin framtíð í því. Sonur minn er efnilegur á fjármálamarkaðnum.
Hann er ekki nema 29 ára og þegar hann fór í afmæli til vinar síns
um daginn gaf hann honum glænýjan BMW. Þá segir Siggi: Það er nú
ekkert, sonur minn er orðinn mjög viðamikill á fasteignamarkaðnum, aðeins 27 ára, og þegar hann fór í afmæli hjá félaga sínum um daginn gaf hann honum nýja íbúð í Skerjafirðinum.
Í þessu kemur Guðmundur af klósettinu: missti ég af einhverju ?
Nei, segja pókerfélagarnir. Við héldum áfram að tala um strákana
okkar.
Já, segir Guðmundur.
Ég verð nú að viðurkenna að ég varð fyrir vonbrigðum þegar strákurinn minn kom út úr skápnum, en hann plumar sig vel. Hann er
með tvo í takinu núna. Annar gaf honum glænýjan BMV og hinn gaf honum íbúð í Skerjafirðinum.
.ZeLLa.