Í hádeginu: leggðu bílnum og sittu í honum með sólgleraugu. Miðaðu með hárþurrku á bílana sem keyra framhjá. Athugaðu hvort þeir hægi á sér.

Kallaðu sjálfa þig upp í innanhúss kallkerfinu. EKKI reyna að breyta rödd þinni.

Stattu föst á því að netfangið þitt sé: Xena-Warrior-Princess@OCDSB.edu.on.ca eða Elvis-the-King@OCDSB.edu.on.ca

Hvert skipti sem einhver biður þig að gera eitthvað fyrir sig, spyrðu “má bjóða þér franskar með þessu?”

Stilltu ruslafötunni upp á skrifborðið með miða á sem segir “Innbox”

Þróaðu með þér óeðlilega hræðslu við prjónadót.

Fylltu kaffivélina með koffínfríu kaffi í þrjár vikur. Þegar allir eru búnir að losna við koffínfíknina, fyllirðu á með espresso.

Á allar kvittanir skrifar þú; Fyrir kynlífsþjónustu.

Ljúktu öllum setningum þínum með; Samkvæmt spádómum.

Ekki nota punkta

Eins oft og mögulega hægt; hoppa í stað þess að ganga.

Spurðu fólk hvers kyns það sé. Hlæðu brjálæðislega þegar það hefur svarað.

Taktu sérstaklega fram í bílalúgusjoppunni að pöntun þín sé “taka með”.

Syngdu með í óperunni

Farðu á ljóðakvöld og spurðu afhverju ljóðin vanti allan ryþma.

Hengdu flugnanet í kringum skrifborð þitt. Spilaðu frumskógarhljóð af diski alla daga.

Tilkynntu vinum þínum fimm dögum fyrir partýið að þú komir ekki því þú sért ekki alveg upplögð.

Biddu vinnufélaga þína að ávarpa þig með Gladiator-nafni þínu, Rock Hard.

Þegar peningarnir koma út úr hraðbankanum hrópar þú “Ég vann! Ég vann!!! Þriðja skiptið í þessari viku!!!!”

Og að lokum, síðasta ráðið til að halda uppi mátulegri geðveiki í hversdagsleikanum:
Sentu þetta bréf áfram til allra í netfangaskrá þinni, líka þeim sem hafa sent þér þetta og einkum þó þeim sem hafa sérstaklega frábeðið sér ÖLL svona bréf.
.ZeLLa.