Hérna koma nokkrir brandarar sem að ég var að lesa aftan á Andrés blöðum.

Hvað kemur út ef þú blandar saman páfagauk og margfætlu?
labbrabbtæki. barammpsss

Hvað kemur út ef þú blandar sama fíl og kengúru?
Risastórir gígjar um alla Ástralíu. barammpsss

Hefurðu heyrt um lögreglumaninn sem var svo lélegur að hann gat ekki rakið spor í snjó eftir flóðhest með blóðnasi?

maður1: Heyrðu ég frétti að þú værir að fara að flytja flygilinn þinn uppí ris og ætlaði að bjóða fram aðstoð mína.
maður2: ja…ég er nú búinn að flytja flygilinn.
maður1: nú…ekki fluttirru hann einn uppí ris
maður2: nei ég lét köttinn gera það
maður1: köttinn?
maður2: jáá
maður1: hvernig fór kötturinn þinn að því?
maður2: tja…ég notaði bara svipu á hann

dómarinn: af hverju stalstu bílnum
sakborningur: ég var að flýta mér í vinnuna
dómarinn: af hverju tókstu ekki bara strætó
sakborningur: af því að ég er ekki með meirapróf!