Sverrir fékk páfagauk í afmælisgjöf og komst fljótt að því að sá var með
> afbrigðum skapvondur og orðljótur. Sverrir gerði allt sem honum datt í hug
> til að venja fuglinn af þessum ósið, hann notaði sjálfur eintóm
> kurteisisorð, spilaði hugljúfar ballöður fyrir hann og reyndi með því að
> sýna honum gott fordæmi. Ekkert gekk upp. Hann prófaði að skamma fuglinn
> sem svaraði honum fullum hálsi. Hann hristi búrið en gaukurinn varð bara
> enn skapverri og dónalegri við það. Sverrir vissi nú ekki sitt rjúkandi ráð
> og í örvæntingu sinni tók hann fuglinn og setti hann í frystikistuna. Um
> stundarsakir heyrðust ógurleg læti úr kistunni, fuglinn sparkaði og öskraði
> og bölvaði – en skyndilega datt allt í dúnalogn og ekki eitt einasta hljóð
> heyrðist í langan tíma. Sverrir fór nú að óttast að hann hefði meitt
> fuglinn og flýtti sér að opna kistuna. Páfagaukurinn var hins vegar hinn
> rólegasti, steig upp á útrétta hönd Sverris og sagði: “Að undanförnu hefur
> hegðun mín og orðbragð ekki verið til eftirbreytni og sennilegast orðið til
> að móðga þig. Ég mun þegar í stað taka mig rækilega á og breyta þessari
> hegðun minni. Mér þykir verulega leitt hvernig ég hef látið og mig langar
> til að biðja þig innilega fyrirgefningar.” Sverrir varð orðlaus af undrun
> og var um það bil að fara að stama upp spurningu um hvað hefði valdið
> breytingunni þegar páfagaukurinn hélt áfram: “Bara svona fyrir forvitni
> sakir, hvað gerði kjúklingurinn eiginlega?”