Það var eitt sinn viðkvæmur, sköllóttur maður með staurfót sem fékk boð um að mæta í Hrekkjarvökupartý. Honum datt enginn búningur í hug, svo hann ákveður að skrifa bréf til búningaleigu einnar og fá hjá þeim tillögur að búningi sem gæti falið á honum skallann og staurfótinn.

Nokkrum dögum seinna fær hann tölvupóst:

Kæri herra,
Við leggjum til að þú farir sem sjóræningi. Sjóræningjahatturinn kemur til með að fela á þér skallann og með staurfótinn lítur þú alveg út eins og sjóræningi.

Manninum fannst þetta hræðileg móðgun, þar sem þeir höfðu talað um að nýta fötlun hans í búninginn. Hann settist niður og skrifaði frekar harðort kvörtunarbréf til búningaleigunnar. Viku seinna fær hann annan tölvupóst:

Kæri herra,
Afsakaðu þetta með staurfótinn. Ef við hefðum vitað að þetta væri svona viðkvæmt, þá hefðum við strax lagt til að þú færir sem munkur. Munka kufl er svo síður að hann felur staurfótinn og með skallann, þá lítur þú alveg út eins og alvöru munkur.

Nú var maðurinn alveg brjálaður. Skítt með staurfótinn, en að ætlast til að hann myndi nota skallann á sér sem hluta af búningi tók alveg steininn úr. Hann skrifaði núna virkilega harð ort kvörtunarbréf til búningaleigunnar.

Nokkrum dögum seinna fær hann enn einn tölvupóstinn:

Herra,
Finndu stóra fötu af karamellu. Helltu karamellunni yfir sköllóttan hausinn á þér, stingdu staurfótnum upp í rassgatið á þér og farðu sem sleikipinni!
uhh ha?