Einu sinni var tölvunarfræðingur að fara yfir götu þegar hann heyrði frosk kalla á sig, “ Ef þú kyssir mig þá breytist ég í forkunarfagra prinsessu” Strákurinn beygði sig niður og tók froskinn og stakk honum í vasann. Froskurinn sagði aftur við hann: “ Ef þú kyssir mig þá breytist ég í forkunarfagra prinsessu þá skal ég vera hjá þér í eina viku.” Strákurinn tók froskinn úr vasanum, brosti framan í hann og stakk honum aftur í vasann. Froskurinn ræskti sig og sagði hátt: “ Ef þú kyssir mig þá breytist ég í forkunarfagra prinsessu þá skal ég vera hjá þér í eina viku og gera ALLT sem þú villt.” Aftur tók strákurinn froskinn upp úr vasanum, brosti framan í hann og stakk honum síða í vasann. Þá sagði froskurinn við strákinn: “Hvað er að ? ”Ég sagði þér að ég er forkunarfögur prinsessa, mun vera hjá þér og gera allt sem þú villt. Af hverju villtu ekki kyssa mig ?“ Strákurinn svaraði: ”Sko sjáðu til, ég er tölvunarfræðingur. Ég hef ekki tíma fyrir kærustur en talandi froskur er alveg ótrúlega cool"