Jónas var staddur í lyftu í stóru og fallegu húsi í borginni við sundin og
var á leiðinni upp. Þegar hann var kominn nokkrar hæðir upp, stoppaði lyftan
og forkunarfögur dama gekk inn. Jónas fann að hún var með dýrt ilmvatn og
hafði notað mikið af því. Stúlkan tók eftir því að hann var að nasa út í
loftið og sagði með nokkrum þjósti „Romance frá Ralph Lauren, 15.000 krónur
glasið.“

Stuttu seinna stoppaði lyftan aftur og inn gekk önnnur fegurðardís með mikið
ilmvatn. Hún sá að Jónas var að þefa, svo hún leit niður til hans og sagði
„Chanel No. 5, 20.000 krónur únsan.“

Um það bil þrem hæðum seinna stoppaði lyftan þar sem Jónas ætlaði út. Áður
en hann fór út úr lyftunni, horfði hann í augun á stúlkunum, blikkaði
augunum, beygði sig fram, rak við og sagði „Bakaðar baunir frá Heintz, 128
krónur dósin.