Gamla konan og dæturnar þrjár.

Það var einu sinni kona sem átti þrjár dætur
en í hvert skipti sem einhver af dætrum hennar
gifti sig bað mamman þá dótturina sem var að
gifta sig í það skiptið að vera fljóta að skrifa
heim eftir að hún flyttist að heiman og segja
gömlu konunni hvernig kynlífið væri hjá hinum nýgiftu!

Jæja sú elsta gifti sig fyrst og aðeins
tveimur dögum seinna barst gömlu konunni
bréfið frá dóttur sinni.
Á því stóð aðeins “Myllukökur Myllubrauð”.
Gamla konan átti bágt með að skilja þetta en
fyrir einhverja rælni tók hún eftir auglýsingu frá
Myllunni þegar hún var að blaða í Dagblaðinu
síðar um kvöldið en þar stóð
“Myllukökur Myllubrauð….ávallt seðjandi”
Gamla konan sá nú að hún þyrfti engar áhyggjur
af hafa að elstu dóttur sinni henni væri vel sinnt.

En þar kom að miðdóttirin gifti sig og leið vika
frá brúðkaupinu þar til gömlu konunni barst
bréfið frá dóttur sinni. Þar stóð aðeins “Ingvar og Gylfi”.
Kella var nú fljót að leita að Dagblöðunum og fann
að lokum auglýsingu frá Ingvari og Gylfa þar sem stóð
“ Nýi rúmgaflinn frá okkur……King size og extra langur”
Vissi nú kella að hún þyrfti heldur engar áhyggjur af hafa
af þessari dóttur sinni.

Jæja bréfið frá yngstu dótturinni var lengi á leiðinni en
barst loks kellu fjórum vikum eftir brúðkaupið.
Í bréfinu stóð aðeins eitt orð“ Flugleiðir”.
Kella leitaði nú ákaft að auglýsingu frá Flugleiðum í
Dagblaðinu
og á endanum fann hún eina en eftir að hafa lesið
auglýsinguna
leið yfir kellinguna.Því þar stóð:
"Þrisvar á dag,sjö daga vikunnar á alla áfangastaði!!!

ég væri til í að vera yngsta dóttirin :)
það besta sem Guð hefur gefið mér……… eru börnin mín