Jónas og Guðmundur voru góðir vinir. Þeir ræktuðu saman kartöflur,
plöntuðu trjám, spiluðu saman um helgar og fóru stöku sinnum saman
á hverfiskrána. Báðir voru giftir. Jónas átti sjö börn, en Guðmundur
á aðeins eitt, þó þeir hefðu verið giftir í svipaðan tíma.
“Segðu mér, Guðmundur minn,” sagði Jónas, “hvernig ferðu að því
að eiga bara eitt barn á sama tíma og ég er búinn að eignast sjö?”
“Jú, sko, ég nota örugga tímabilið,” sagði Guðmundur.
“Örugga tímabilið?” segir Jónas, “hvenær er það?”
“Annan hvern þriðjudag þegar þú ert á Lions fundi.”