Einstein á röltinu Eitt sinn sem oftar var Einstein á röltinu niður Laugaveginn.

Á leið sinni tók hann tal af manni.
“Sæll,” sagi E, “hvaða greindarvísitölu ert þú með?”
“180,” svaraði maðurinn.
“Fínt, þá skulum við tala um stjarnvísindi” og það gerðu þeir.
Eftir langt og áhugavert spjall ákvað E að halda áfram ferð sinni.

Þá fer hann að spjalla við konu.
“Sæl”, sagi E, “hvaða greindarvísitölu ert þú með?”
“Ég er með 120”, svaraði konan.
“Það er fínt, þá getum við spjallað um stjórnmál” og það gerðu þau.
Eftir líflegar stjórnmálaumræður hélt E áfram göngu sinni.

Þegar hann var að verða kominn niður allan Laugaveginn ákvað hann að spjalla við einn í viðbót, svo hann heilsaði næsta manni: “Sæll”.
“Hæ,” sagði maðurinn.
“Hver er þín greindarvísitala?”
“43”
“Jæja,” sagði E og brosti, “hvað er að frétta af boltanum?”

(mér er alveg sama hvernig þú heyrðir þennan brandara, alveg sama um innsláttarvillur og hvort hann sé gamall eða hafi verið póstaður á Huga áður)
“Ef konur væru með 3 brjóst, væru menn þá með 3 hendur?”, boossmio