Úr kærasta í eiginmann :)

Úr rómantíkinni í hversdagsleikann

Hjónaskilnaðir, framhjáhöld, brestir og svik… ,,Eins og hann var yndislegur þegar við vorum að kynnast en svo giftumst við og hann bara varð allt annar maður“! Hvað á sér stað þegar rómantíkin og ástríðan þverr og hversdagsleikinn tekur yfir? Er þetta eitthvað sem verður að sættast við eða eru til einhver góð ráð?
Keypti ég köttinn í sekknum?!

Frá kærasta til eiginmanns

Ágæta tæknideild. Á síðasta ári fékk ég mér uppfærslu úr Boyfriend 5.0 í Husband 1.0. Fljótlega á eftir tók ég eftir því að nýja forritið átti í örðugleikum með að aðlagast þeim forritum sem fyrir voru og takmarkaði til dæmis aðgang minn að blóma og skartgripaskránum sem hafði verið ekkert mál að opna með gamla forritinu Boyfriend 5.0.
Ekki nóg með þetta heldur eyddi Husband 1.0 mörgum mikilvægum forritum eins og t.d. Hot-sex 1.0 og Romance 9.9 en setti inn önnur forrit sem ég kærði
mig ekkert um eins og NBA 3.0 og Formula 6.0. Forritið Conversation 8.0 virkar ekki lengur og ef ég ræsi upp HouseCleaning 2.6 hrynur kerfið. Ég hef
prófað viðgerðarforritið Nagging 5.3 til að laga þetta en ekkert gengur.
Hvað get ég gert?
Kveðja, Baby

Frá skemmtun til stjórnunar
Ágæta Baby
Hafa ber í huga að Boyfriend 5.0 er eingöngu skemmtiforrit meðan að Husband 1.0 er stýrikerfi. Prófaðu að slá inn skipunina C:\ITHOUGHT YOU LOVED ME og ræsa síðan upp viðgerðarforritið Tears 6.2 Stýrikerfið Husband 1.0 ætti að bregðast við með því að ræsa sjálkrafa upp Guilty 3.0 og Flowers 7.0.
Passaðu þig á að ræsa ekki upp Beer 6.1 sem býr til ”Snoring Loudly" hljóðskrár eða forritið MotherInLaw 1.0. Ekki reyna heldur að ræsa annað
Boyfriend forrit. Þetta eru forrit sem stýrikerfið Husband 1.0 styður ekki og gætu valdið algjöru kerfishruni. Í stuttu máli er Husband 1.0 frábært
forrit, en er með takmarkað minni og er ekki fljótt að læra að vinna með nýjum forritum. Þú gætir prófað að kaupa hjálparforrit til að bæta virkni Husband 1.0. Við hér á tæknideildinni mælum sérstaklega með HotFood 3.0, Lingerie 5.3 og Keep-a-nice-body 10.1

Kær kveðja,
Tæknideildin
það besta sem Guð hefur gefið mér……… eru börnin mín