Vel klæddur lögfræðingur fór inn á bar og pantaði sér martini og sá að við hliðina á honum sat róni sem muldraði og glápti á eitthvað í hendinni á sér. Lögfræðingurinnhallaði sér lengra að honum og heyrði að róninn sagði, þetta lítur út eins og plast, síðan rúllaði hann því á milli fingranna og hélt áfram: En þetta er eins og gúmmí viðkomu. Lögfræðingurinn spurði forvitinn: hvað ertu með þarna manni? Róninn svaraði, ég hef ekki hugmynd, en það lítur út eins og plast en er eins og gúmmí viðkomu. Má ég sjá spurði lögfræðingurinn og róninn lét hann fá það. Lögfræðingurinn skoðaði þetta gaumgæfilega.
Já þetta lítur út eins og plast en er eins og gummí viðkomu, sagði hann. En ég veit ekki hvað þetta er. Hvar fékkstu þetta eiginlega?
Úr nefinu á mér, svaraði róninn.