Það var nýr prestur við fyrstu messuna sína sem var svo hræddur að hann kom varla upp orði. Eftir messuna spurði hann meðhjálparann hvernig sér hafi gengið. Ágætlega sagði meðhjálparinn, en það gæti hjálpað honum með næstu messu að setja smá vodka eða gin í vatnið sitt, gamli presturinn hafði gert það til að slappa af. Næsta sunnudag setti presturinn vodka í glasið sitt og það kjaftaði á honum hver tuska. aftur spurði presturinn maðhjálparann hvernig sér hafi gengið núna. Ágætlega , sagði meðhjálparinn aftur, en það væru nokkrar staðreyndir sem þeir ættu að fá á hreint:

1. Það eru tíu boðorð, en ekki tólf.

2. Það eru tólf postular, ekki tíu.

3. Davíð vó Golíat, hann buffaði hann ekki.

4. Við minnumst ekki á Jesú Krist sem Jonna heitin Ká.

5. Næsta sunnudag verður haldin karamellukökukeppni hjá Sankti Péturskirkju en ekki Péturs kaffi kýling hjá Sankti Karamellukirkju.

6. Faðirinn, sonurinn og hinn heilagi andi eru ekki nefndir Kallinn, Lilli og draugurinn.


Kveðja Ludo

Ég tek ekki ábyrgð á stafsetningavillum.