Hvað ef matur væri svæsin og kynlíf væri allra mál. Þegar þú hugsar út í það, þá eru bara tveir hlutir sem þú þarfnast til að búa til fólk. Þú verður að hafa kynlíf og þú verður að hafa mat, þaðer allt og sumt. Þú þarfnast hvorki fatnaðar, húsaskjóls eða sjónvarps. Allt í lagi, kannski sjónvarps, en annars er það kynlíf og
matur. En af einhverjum ástæðum er kynlíf ónefnalegt. Kannski var guð repúblikani. Einhver sagði
“Allt í lagi, þið viljið fá að fjölga ykkur, gjöriði svo vel, en bara seint um kvöldin með lokaðar hurðir,
kallin ofan á, einu sinni í viku”, og þannig er það. En ekki bara fáum við að borða rotnandi hold af
öðrum spendýrum, heldur fáum við að gera það um hábjartan dag og bjóða öllum vinum okkar til þess
að horfa á: “Hey, Siggi, hversvegna kemur þú ekki til okkar á sunnudaginn. Við ætlum að drepa svín,
skera það í bita og éta það. Komdu með krakkana, við munum hafa heljarinnar fjör.” Hvernig væri það
ef þeir hefðu snúið þessu við? Hvað ef bara fyrir slembni örlaganna hefði kynlíf verið orðið nefnanlegt
og matur orðið ónefnalegur? Öll menning okkar myndi breytast. Matur myndi vera blótsyrði.
Þegar fólk yrði fúlt út í þig myndi það hrópa “Haltu kjafti! Farðu í hamborgara. Sjúgðu ost, íspinntottarinn þinn!! ”Töffarar sem væru að mæta þér í bíl myndu sýna þér gaffalinn. Flassarar myndu vera með pítsur hangandi utan á sér. “Guð minn góður, það er pepperóní.” Búningsklefa samtöl myndu breytast til muna. “Hey, hvað komst þú yfir um þessa helgi?” “Tvo hamborgara og poka af frönskum.” Hvítlaukur myndi vera ólöglegur í flestöllum fylkjum Suðurríkjanna. Stórverslanir myndu krefjast persónuskilríkja og setja gjald á kjötborðið.Forleikur myndi vera skráð sem valmöguleiki í matseðlum. Siðferðisdeildir Lögreglunnar myndu stunda árásir á grillveislur. “Allt í lagi, legðu frá þér kjötið. Bakkaðu frá kótilettunum, herra” Grænmetisætum myndi vera bannað að gerast kennarar og margar þeirra myndu flytja til San Fransisco. Flest allir úthverfaskólar myndu banna matreiðslu sem fag. Vændiskonur myndu gerast kokkar. Það myndu
abbast upp á þig þig þybbnar kerlingar í sjálflýsandi svuntum á götuhornum. “Hey, stóri strákur, vantar þig heita máltíð? Langar þigað kjamsa í smá hamsa?” Bókstafstrúaðir kristnitrúarmenn myndu gera kjöt og kartöflur að trúarlegum kenningum. Það myndi uppgötvast að margar kynlífsstellingar gætu valdið krabbameini. Foreldrar myndu segja börnunum að hætta að leika sér með matinn sinn annars myndu þau tapa sjóninni. Unglingar myndu muna eftir því þegar mamma þeirra kom að þeim þegar þau voru að marinera í sitt fyrsta skipti.