Einu sinni sem oftar voru þrír vinir Jón, Páll og Símon að tala saman um hitt og þetta og allt í einu er umræðan farin að snúast um dætur þeirra.
Þá segir Símon.
-Ég var nú inn í herbergi hjá dóttir minni og finn þar tóma Captain Morgan flösku og ég vissi ekki að hún væri byrjuð að drekka.
-Iss, segir Páll. Ég fann nú heilt karton af sígarettum undir rúminu hjá dóttir minni og ég vissi ekki að hún væri byrjuð að reykja.
-Já segir Jón. Ég var nú að skoða herbergið hjá dóttir minni og finn þar notaðan smokk á gólfinu. Og ég vissi ekki einu sinni að hún væri komin með typpi!!