Tíu skýringar sem hægt er að gefa þegar yfirmaðurinn kemur að manni sofandi við skrifborðið:

10. “Þær sögðu mér í blóðbankanum að þetta gæti gerst.”
9. “Þetta er bara kortérs orkublundur eins og sagt var frá á stjórnunarnámskeiðinu sem þú sendir mig á.”
8. “Vá! Ég gleymdi að setja tappann aftur á Tipp-exið. Þú hefur líklega komið rétt á elleftu stundu.”
7. “Ég var ekki sofandi! Ég var að íhuga verkefnaviðmiðin og úthugsa nýjan rannsóknarramma.”
6. “Ég var að prófa nýju slef-vörnina á lyklaborðinu mínu.”
5. “Ég var að framkvæma sérlega erfiða Jóga-æfingu til að losa mig við stereituvald sem orsakast af vinnu-umhverfi mínu. Hefur þú eitthvað á móti Jógaiðkendum?”
4. “Fjárinn, af hverju varstu að trufla mig? Ég var rétt að finna lausnina á stærsta vandamálin fyrirtækisins.”
3. “Kaffivélin er biluð …”
2. “Það hefur einhver sett koffínlaust kaffi í vélina.”
1. “… í Jesú nafni, amen.”
Hrebbna