Nonni litli var aðeins farinn að velta fyrir sér lífinu og tilverunni og
einn daginn fór hann til pabba síns og spurði hann: “Hvað eru stjórnmál?”
Pabbi hans svaraði: “Jú sjáðu til, það er kannski best að ég útskýri það á
þennan hátt: Ég vinn fyrir fjölskyldunni og þess vegna skulum við kalla
mig
Auðmagnið. Mamma þín stýrir heimilinu og ræður útgjöldunum og þess vegna
skulum við kalla hana Stjórnvöld. Við erum til þess að sinna þörfum þínum
svo við skulum kalla þig Fólkið. Við getum siðan haldið áfram og kallað
barnfóstruna Öreiga. Litla bróður þinn skulum við kalla Framtíðina. Farðu
nú og veltu þessu fyrir þér og athugaðu hvort þetta kemur ekki heim og
saman. Þannig að Nonni litli fór í háttinn og hugsaði stöðugt um það sem
pabbi hans sagði honum. Um nóttina vaknar hann upp við grátinn í bróður
sínum. Þegar hann kemur inn í herbergi hans finnur hann fljótt að bleian
hans er blaut og mikil fýla af henni. Hann fer inn í svefnherbergi
foreldra
sinna og finnur mömmu sína sofandi. Þá fer hann að herbergi barnfóstrunnar
og finnur að hurðin er læst. Hann kíkir inn um skráargatið og sér föður
sinn í rúminu með barnfóstrunni. Að lokum gafst Nonni litli upp og fór
aftur í herbergi sitt og sofnaði. Næsta morgun segir hann við föður sinn.
”Pabbi, ég held núna að ég skilji hvað stjórnmál ganga út á.“ Gott segir
faðirinn, segðu okkur frá því. Þá sagði Nonni litli: ” Jú sjáðu til, á
meðan Auðmagnið riðlast á Öreigunum er Ríkisstjórnin steinsofandi. Fólkið
er hundsað og Framtíðin er í djúpum skít…
KV