Fréttamaður var að taka viðtal við níræðan karl sem hafði nýlokið við maraþonhlaup. ,,Segðu mér, hverju þakkar þú þetta ótrúlega þrek á þínum aldri?“ ,,Ja ég reyki hvorki né drekk og hef aldrei verið upp á kvenhöndina” svaraði sá gamli. Rétt í því heyrðist mikill skarkali ofan af efri hæðinni. ,,Hvað er þetta?“ spurði fréttamaðurinn. ,,Ætli þetta sé ekki hann pabbi gamli. Hann fer alltaf að djöflast á vinnukonuuni þegar hann er búinn að fá sér nokkra” sagði sá gamli.