Kæru vinir

Á síðasta ári fékk ég mér uppfærslu úr Boyfriend 5.0 í Husband 1.0.
Fljótlega á eftir tók ég eftir því að nýja forritið átti í örðugleikum
með að aðlagast þeim forritum sem fyrir voru og takmarkaði til dæmis
aðgang minn að blóma og skartgripaskránum sem hafði verið ekkert mál
að opna með gamla forritinu Boyfriend 5.0.

Ekki nóg með þetta heldur eyddi Husband 1.0 mörgum mikilvægum forritum
eins og t.d. Hot-sex 1.0 og Romance 9.9 en setti inn önnur forrit sem ég
kærði mig ekkert um eins og NBA 3.0 og Formula 6.0.

Forritið Conversation 8.0 virkar ekki lengur og ef ég ræsi upp
HouseCleaning 2.6 hrynur kerfið.

Ég hef prófað viðgerðarforritið Nagging 5.3 til að laga þetta
en ekkert gengur.

 Hvað get ég gert

Kveðja
Baby

 ————————
Ágæta Baby

Hafa ber í huga að Boyfriend 5.0 er eingöngu skemmtiforrit meðan að
Husband 1.0 er stýrikerfi.

Prófaðu að slá inn skipunina C:/ITHOUGHT YOU LOVED ME og  ræsa síðan upp
viðgerðarforritið Tears 6.2

Stýrikerfið Husband 1.0 ætti að bregðast við með því að ræsa sjálkrafa
upp Guilty 3.0 og Flowers 7.0.

Passaðu þig á að ræsa ekki upp Beer 6.1 sem býr til “Snoring Loudly”
hljóðskrár eða forritið MotherInLaw 1.0. Ekki reyna heldur að ræsa
annað Boyfriend forrit.

Þetta eru forrit sem stýrikerfið Husband 1.0 styður ekki og gætu valdið
algjöru kerfishruni.

Í stuttu máli er Husband 1.0 frábært forrit, en er með takmarkað minni
og er ekki fljótt að læra að vinna með nýjum forritum.  Þú gætir prófað
að kaupa hjálparforrit til að bæta virkni Husband 1.0.
Við hér á tæknideildinni mælum sérstaklega með HotFood 3.0, Lingerie 5.3
og Keep-a-nice-body 10.1

 Kær kveðja
 Tæknideildin