Og svo var það ljóskan sem fékk þennan gífurlega áhuga á dorgveiði.
Hún varð sér út um allan búnað til þess arna, veiðigræjur, borsveif, stól og hvað ekki.
Nú, svo var að skella sér í veiði. Hún kom sér fyrir úti á ísnum, settist á stólinn og fór að bora.
Þá gall við rödd sem sagði: “Hér er enginn fiskur.” Henni varð bylt við og leit í kringum sig en sá engan. Hún færði sig um set.
Á nýjum stað kom hún sér fyrir settist á stólinn og fór að bora. Og aftur gall við röddin: “ Hér er enginn fiskur.”
Aftur tók hún saman græjurnar og færði sig um set. Og sem hún byrjar aftur að bora gellur við röddin: “Hér er enginn fiskur.”
Hún lítur í kringum sig, upp í loftið og allt í kring en sér engan.
Hún spyr með titrandi röddu.
“Er…, er þetta Guð?”
“NEI! Þetta er umsjónamaður skautahallarinnar og hér er engan fisk að hafa…”
————————————————-

Dag einn var Pési að kvarta við vin sinn, “mér er alveg hrikalega illt í olnboganum. Ég held að ég verði að fara til læknis”.
Félaginn sagði, “ekki gera það, það er komin alveg ótrúleg vél niðrí apótek sem getur sagt þér nákvæmlega hvað það er sem hrjáir þig. Það er mikið fljótlegra og ódýrara en að fara til læknis. Þú setur bara þvagsýni í vélina og hún segir þér hvað er að þér og hvað þú átt að gera í því, og það kostar bara 500 kall”.
Pési ákvað að hann hefði engu að tapa og fór með þvagsýni í apótekið.
Þegar hann var kominn þangað hellti hann sýninu í vélina og borgaði 500 kallinn. Vélin fór að framkalla skrítin hljóð og fullt af ljósum blikkuðu.
Eftir smá stund kom prentaður miði úr vélinni sem á stóð: Þú ert með tennisolnboga. Láttu hendina liggja í heitu vatni, vefðu heitum bökstrum um olnbogann og forðastu erfiðis vinnu, þá ættir þú að vera orðinn betri eftir tvær vikur.
Seinna um kvöldið var hann enn að hugsa um hversu mögnuð vélin væri og datt allt í einu í hug hvort ekki væri hægt að plata hana, eftir smá umhugsun ákvað hann að reyna. Hann blandaði saman krana vatni, hunda skít úr hundinum sínum og þvagsýnum úr bæði konu sinni og dóttur, og til að toppa þetta runkaði hann sér í blönduna. Daginn eftir fór hann í apótekið, hellti blöndunni í vélina og borgaði 500 kallinn. Véilin byrjaði strax að blikka ljósum og framleiða hávaða og prentaði síðan út eftir farandi greiningu:
Lagnirnar hjá þér eru ryðgaðar, hringdu á pípara. Hundurinn þinn er með orma, farðu með hann til dýralæknis. Dóttir þín notar kókaín, sendu hana í meðferð. Konan þín er ólétt, þú átt það ekki, fáðu þér lögfræðing. Hættu að runka þér annars batnar þér aldrei í olnboganum!Dag einn var Pési að kvarta við vin sinn, “mér er alveg hrikalega illt í olnboganum. Ég held að ég verði að fara til læknis”.
Félaginn sagði, “ekki gera það, það er komin alveg ótrúleg vél niðrí apótek sem getur sagt þér nákvæmlega hvað það er sem hrjáir þig. Það er mikið fljótlegra og ódýrara en að fara til læknis. Þú setur bara þvagsýni í vélina og hún segir þér hvað er að þér og hvað þú átt að gera í því, og það kostar bara 500 kall”.
Pési ákvað að hann hefði engu að tapa og fór með þvagsýni í apótekið.
Þegar hann var kominn þangað hellti hann sýninu í vélina og borgaði 500 kallinn. Vélin fór að framkalla skrítin hljóð og fullt af ljósum blikkuðu.
Eftir smá stund kom prentaður miði úr vélinni sem á stóð: Þú ert með tennisolnboga. Láttu hendina liggja í heitu vatni, vefðu heitum bökstrum um olnbogann og forðastu erfiðis vinnu, þá ættir þú að vera orðinn betri eftir tvær vikur.
Seinna um kvöldið var hann enn að hugsa um hversu mögnuð vélin væri og datt allt í einu í hug hvort ekki væri hægt að plata hana, eftir smá umhugsun ákvað hann að reyna. Hann blandaði saman krana vatni, hunda skít úr hundinum sínum og þvagsýnum úr bæði konu sinni og dóttur, og til að toppa þetta runkaði hann sér í blönduna. Daginn eftir fór hann í apótekið, hellti blöndunni í vélina og borgaði 500 kallinn. Véilin byrjaði strax að blikka ljósum og framleiða hávaða og prentaði síðan út eftir farandi greiningu:
Lagnirnar hjá þér eru ryðgaðar, hringdu á pípara. Hundurinn þinn er með orma, farðu með hann til dýralæknis. Dóttir þín notar kókaín, sendu hana í meðferð. Konan þín er ólétt, þú átt það ekki, fáðu þér lögfræðing. Hættu að runka þér annars batnar þér aldrei í olnboganum!

———————————————

Jón bóndi í Útnára hafði aldrei verið giftur, en var í gær að fá til sín eina Thælenska úr póstlistanum “Einn með Öllu”. Hann veit ekki alveg hvernig
hann á að umgangast dömuna og ákveður að hringja í póstlistann, en fyrir
slysni ruglast hann á símanúmerum og fær samband við tölvubúðina “Ein með Öllu”.

Heyrum nú hvað þeim fór á milli.

Sölumaður (S)
Jón bóndi (J)

RING RING

S “Ein með öllu” góðan daginn,

J “Já, góðan daginn. Ég fékk hjá ykkkur ”Eina“ núna um daginn og ég er í helvítis brasi með hana. Ég kann bara ekkert á hana. Ég held að hún sé tælensk…..”

S “Neiii…. Það getur ekki verið. Ef þú hefur fengið hana nýlega þá hlýtur hún að vera frá Kóreu. Hvað heitir hún annars?”

J “Hún heitir Híun Dæ, held ég. Hún var allavega með merki framan á sér sem á stóð Híun Dæ.”

S “Já, Hyundai, það getur passað. En hvaða vandræði eru með hana?”

J “Ég er búin að vera að berjast við að reyna að koma henni af stað í allan dag en ekkert gengið.”

S “Ertu búinn að taka hana úr umbúðunum?”

J “Já, já, hún stendur hérna alveg ”nettó “fyrir framan mig og ég bara veit ekkert hvað ég á að gera næst.”

S “Mér finnst nú alltaf best að hafa þær uppi á borði þegar ég nota þær annars þreytist maður svo fljótt í bakinu.”

J “Jááá þú segir nokkuð. Ég skelli henni þá upp á borð!”

S “Gott, svo sestu framan við hana og athugar hvort hún sé orðin heit.”

J “Ég er búin að þreifa aðeins á henni og hún er bara sæmilega volg víðast hvar…”

S “Hvernig týpa er þetta annars? 486?”

J “Tja- 6 og ekki 6…Það sem ég var með í huga var bara svona venjulegt sex allaveganna til að byrja með. Það er aldrei að vita hvað maður gerir svona seinna meir…”

J “Þú segir að hún sé orðin volg, já Þá skaltu grípa um músina, og færa hana rólega þangað til að ”bendillinn“ er kominn þangað sem þú vilt.”

J “Grípa um músina? Er það nú ekki svolítið ruddalegt svona rétt á meðan við erum að kynnast?”

S “Nei, nei. Það er alveg nauðsynlegt að vera liðugur á músina þannig að þú fáir það sem þú vilt.”

J “Jæja, það skal þá þannig vera, en heyrðu, það er allt fullt af hárum á músinni !”

S “Klikkaðu undir hana og blástu svo á hana. Það ætti að duga. Hvernig er annars minnið í henni?”

J “Tja, það hefur nú lítið reynt á það ennþá hún kom nú bara í gær”

S “Þú ert náttúrulega með harðan? Er það ekki?”

J “Harðan. Jú, og ég er búinn að vera með hann lengi. Loksins er ég búinn að fá eitthvað til að setja hann í! !”

S “Hvað er hann stór?”

J “Stór??? Hann er svona í góðu meðallagi!!!!”

S “O.K. gott, þeim mun stærri því meiru getur þú hlaðið á hann. Segðu mér annað, hvernig drif er á henni?”

J “Hvað meinar þú með drif??????”

S “Sérðu ekki rifu framan á henni? Það er drifið…”

J “Já, ég sé smá rifu en ég er vanur að kalla hana allt öðrum nöfnum.”

S “Já, rifan er til þess að bæta í hana einu og öðru. Þú stingur bara floppinum inn og svo er það bara ”run“ og ”enter“.”

J “Run? Þarf það???? Ég er nú ekki með það stórt herbergi að ég geti verið að hlaupa mikið en ENTER það get ég!!!”

S “Svo veistu að þú getur tekið pásu hvenær sem er því að sá harði geymir allt saman eins lengi og þú vilt, nema náttúrulega að hún krassi á þig!”

J “Krassi á mig? Eiga þær það til líka? Ég get nú bara ekki hugsað þá hugsun til enda.”

S “Ef hún krassar þá getur sá harði skemmst.”

J “Það hlýtur að vera ósköp sárt!!!!”

S “Enn hvað ætlar þú að gera við hana? Í hvað ætlar þú að nota hana?”

J “Ég var nú aðallega að hugsa um að leika mér að henni meðan ég er að kynnast henni. Svo fer ég að nota hana í eitt og annað nytsamlegt.”

S “Það er upplagt að láta hana sjá um bókhaldið. Það er um að gera að nýta möguleika hennar á öllum sviðum eins og maður getur.”

J “Segðu mér eitt, er ekki óhætt að treysta þeim?”

S “Jú, jú, þær eru nokkuð öruggar.”

J “Hvað finnst þér um hana? Heldur þú að hún sé ekki bara nokkuð góð? Hún Híun Dæ???”

S “Jú, ég er búinn að skoða þær margar, og þessi er örugglega þrælgóð.
Þú þarft náttúruleg að vita að þær úreldast fljótt. Þú kemur bara með hana niðureftir og uppfærir í eina nýja. Við tökum þá gömlu uppí!!”

J “Það er ekki að spyrja að því. Toppþjónusta sem þið veitið…..”

S “Já, við leggjum okkur fram við að veita kúnnanum góða þjónustu. Margir skipta á svona tveggja ára fresti…”

J “Heyrðu, ég þakka þér bara kærlega fyrir hjálpina. Nú er ég tilbúinn til þess að hjóla í hana….”

S “Gott hjá þér, og ef þú lendir í frekari vandræðum þá skal ég koma á staðinn og hjálpa þér.”

uhh ha?