Heimildarritgerð Um Kýr þetta er saga sem gengur á Facebook þessa dagana, en mikð er framtíð okkar björt ef æska vors lands getur bjargað sér svona snilldarlega og með sköpunnargáfuna sannarlega á réttum stað

Nytsemi kýrinnar

Kýrin er húsdýr, en hana má líka finna fyrir utan húsið. Og hún býr oftast í sveitinni en kemur líka inn í bæinn, en bara þegar hún á að deyja. En það ákveður hún ekki sjálf.

Kýrin hefur sjö hliðar, efri hliðina, neðri hliðina, fremri hliðina, aftari hliðina, eina hliðina, hina hliðina og innri hliðina. Á framhliðinni er höfuðið og það er til þess að það sé hægt að festa hornin einhvers staðar. Hornin eru gerð úr horni og þau eru bara skraut. Þau geta ekki hreyft sig en það geta eyrun. Þau eru við hliðina á hornunum. Kýrin hefur tvö göt framan á höfðinu. Þau heita kýr-augu.

Á afturhliðinni er halinn. Hún notar hann til þess að reka í burtu flugur svo að þær detti ekki í mjólkina og drukkni.

Á efri hliðinni og einni hliðinni og hinni hliðinni er bara hár. Það heitir kýr-hár og er alveg eins á litinn og kýrin.

Neðsta hliðin er mikilvægust því að þar hangir mjólkin. Og þegar mjólkurkonan oppnar kranana þá rennur mjólkin út. Þegar það er þrumuveður, verður mjólkin súr, en ég er ekki ennþá búin að læra hvernig það gerist.

Beinin í kúnni heita kú-bein. Það er líka hægt að nota þau til að draga út nagla.

Kýrin borðar ekki svo mikið, en þegar hún gerir það borðar hún alltaf tvisvar. Þegar kúnni er illt í maganum gerir hún ost. Það eru göt í osti. En ég er ekki búin að læra ennþá hvernig hún gerir götin.

Kýrin er með gott lyktarskyn. Við getum fundið lyktina af henni langar leiðir. Hvolpar kýrinnar heita kálfar. Pabbi kálfanna heitir naut og það heitir maður kýrinnar líka. Nautið gefur okkur ekki mjólk og þess vegna er hann ekki spendýr.

Þegar kúnni er slátrað, hella menn mjólkinni í fernur sem maður kaupir í búðinni. Fæturnir fjórir eru sendir til smiðsins. Það heitir endurvinnsla.

Eins og þið sjáið er kýrin nytsamt dýr. Og þess vegna finnst mér mjög vænt um kýrnar.

Athugasemd kennarans: Ég hef aldrei lesið neitt þessu líkt.

ég vil aðeins benda á að ég hvorki samdi greinina né skrifaði hana