Engel hrigdi í mig og sagði „Ég var á leiðinni í vinnu í morgun þegar ég leit yfir á hina akreinina og sá þá konu í glænýjum Súbarú á 90 kílómetra hraða með andlitið klesst upp við baksýnisspegilinn að reyna að draga ælæner í kringum augun á sér!

Ég horfði frá henni í nokkrar sekúndur, en þegar ég leit á hana aftur, þá var hún komin hálfa leið inn á mína akrein og enn að reyna að mála sig.

Mér brá svo hrottalega að ég missti rafmagnsrakvélina mína og hún sló kleinuhringinn úr hinni hendinni á mér.

Í látunum við það að rétta bílinn minn af með hnjánum á stýrinu, þá datt farsíminn minn af eyranu á mér oní kaffibollann sem ég var með á milli læranna og við það missti ég samband við mjög mikilvægan kúnna!

ÞESSAR KELLINGAR KUNNA EKKERT AÐ KEYRA !!
******************************************************************************************