Miðaldra maður í Ameríku keypti sér nýjan Mercedes til að halda uppá það að
konan hans fór frá honum. Fór svo í bíltúr um kvöldið til að sýna sig og sjá
aðra. Topp lúgan var dregin niður og vindurinn blés í þær hárlýjur sem ennþá
prýddu höfuð hans. Hann gaf hressilega í og þegar hraðamælirinn sýndi 180 sá
hann skyndilega að baki sér lögguna með blikkandi ljósin.

Hmrmff… þeir ná mér aldrei á Mercedes Bens og hann gaf í… og gaf aftur í
.. Þá tók skynsemin völdin og hann sagði við sjálfan sig “Hvað er
eiginlega að mér?” …hægði á og keyrði út í vegarkantinn.

Löggan kom að honum leit á ökuskírteinið og grandskoðaði bílinn:

“Þetta hefur verið langur vinnudagur” sagði hann “ég er að ljúka vaktinni og
það er föstudagurinn 13. Ég nenni ekki meiri pappírsvinnu, og hef engan
áhuga
á yfirvinnu, - ég gef þér séns. Ef þú getur komið með góða afsökun fyrir
þessum ofsahraða sem þú fórst á ,betri en ég hef nokkru sinni heyrt, þá læt
ég þig sleppa í þetta sinn”

Kallinn hugsaði sig um nokkra stund og segir loks:

“Kellingin stakk af fyrir nokkrum dögum með lögreglumanni. Ég var skal ég
segja þér svo hræddur um að þú værir að skila henni”

“Góða helgi” sagði löggan