Hvað þú getur dundað þér við að gera í stórmarkaðinum á meðan konan þín verslar

1. Náðu þér í 24 kassa af smokkum og dreifðu þeim handahófskennt í
innkaupakerrur annarra þegar þeir eru ekki að horfa.

2. Stilltu allar verkjaraklukkurnar í raftækjadeildinni þannig að þær fari í gang á 5 mínútna fresti

3. Búðu til slóð með tómatsafa á gólfið alveg að klósettunum.

4. Settu M&M í útsölurekka

5. Tjaldaðu í útivistardeildinni og segðu öðrum viðskiptavinum að þeir séu ekki boðnir nema þeir komi með kodda úr rúmfatalagernum með sér.

6. Þegar starfsmaður snýr sér að þér og býður þér aðstoð, farðu þá að grenja og segðu ,,af hverju getur fólk ekki bara látið mig í friði?“

7. Horfðu beint í öryggismyndavélina og notaðu hana eins og spegil á meðan þú borar í nefið.

8. Þegar þú handleikur beitta hnífa í búsáhaldadeildinni spurðu þá
starfsmann hvort geðlyf séu seld í búðinni

9. Stikaðu um verslunina með grunsemdarsvip og sönglaðu hátt
byrjunarlagið úr ‘Mission Impossible’.

10. Feldu þig í fataslám og þegar fólk skoðar föt, stökktu þá fram og segðu hátt ,,Veldu mig.. veldu mig…..”

11. Þegar tilkynning hefur heyrst í hátalarakerfinu taktu þá um höfuðið og segðu ,,oh þessar raddir aftur…“

12. Farðu inn í mátunarklefa og kallaðu hátt ,,hey það vantar
klósettpappír hér…”


Góða skemmtun!