Feimin smeygði hin unga brúður sér undir sængina. -“Pétur?” -“Já vina mín”. -“Hvað margar stúlkur hafa legið í rúminu hjá þér á undan mér?” Löng þögn. -“Pétur?” -“Já vinan.” -“Ég bíð eftir svari frá þér.” -“Já þú verður að bíða, ég er enn að telja…”!

-

Skrýtið læknir, kvartaði pía: -“Alltaf þegar ég sé myndarlegan karlmann fer mig að klæja milli tánna.” -“Furðulegt,” svaraði læknirinn. -“Hvaða táa?” -“Stóru tánna”.

-

Ást í Hollywood: 1.þáttur: -Augu þeirra mætast. 2.þáttur: -Varir þeirra mætast. 3.þáttur: -Lögfræðingar þeirra mætast.

-

Gerir þú þér grein fyrir að hundurinn yðar beit mig. -Hundurinn minn, skrýtið, hann hefur ofnæmi fyrir svínum.

-

Hvernig á að heilla konu: Hrósaðu henni, faðmaðu hana, kysstu hana, haltu utan um hana, elskaðu hana, strjúktu henni, stríddu henni, huggaðu hana, verndaðu hana, eyddu peningum í hana, bjóddu henni út að borða, kauptu gjafir handa henni, hlustaðu á hana, stattu við hlið hennar, styddu hana, farðu hvert sem er fyrir hana…
Hvernig á að heilla mann: Mættu nakin… með bjór.