Elskan sjáðu þennan skunk sem ég keypti í Gullfiskabúðinni!
-Skunkur! hvar ætlarðu að geyma hann? -Nú í svefnherberginu.
-En hvað með lyktina? -Ég er viss um að honum er alveg sama!


(hjá tannlækninum)
Á ég að deyfa tönnina áður en ég bora í hana? -Nei, hún er búin að halda mér vakandi í alla nótt og nú ætla ég að hefna mín á henni!


Hefuru heyrt um konuna sem er svo gömul að í hvert skipti sem hún fer inn í forngripaverslun reynir einhver að fá hana keypta.


Þú ert rekin! -Já, en ég gerði ekki neitt! -Það er einmitt ástæðan.


Mamma, það er maður við útidyrnar að byðja um framlög í söfnun fyrir nýju elliheimili. Á ég´að gefa honum ÖMMU?