Ég man ekki hvort ég las þennan hérna á huga, ef svo er þá byðst ég bara afsökunar =)


Bill Clinton, George Bush og Al Gore voru allir handsamaðir af írönskum Hryðjuverkamönnum og settir í útrýmingabúiðir til að aflífa þá. First var Bill styllt uppvið vegg og íranskir byssumenn tóku sér stöðu fyrir framan hann og gerðu sig tilbúna til að skjóta. En þá skyndilega hrópar Bill “Earthquake!” og allir byssumennirnir fleygja sér til jarðar í hræðslukasti, á meðan notar Bill tíman og flýr.
Því næst taka þeir Al Gore og stylla honum uppvið vegginn. Byssumennirnir taka sér stöðu og miða, en þá hrópar Al “Hurricane!” og byssumennirnir fleygja sér til jarðar og Al notar tímann til að flýja.
Núna taka þeir Bush og stilla honum uppvið vegg og gera sig klára til að skjóta. Þá hugsar bush með sér “hmm ég sé samhengi hérna, ég hrópa bara eitthvað í sambandi við náttúruhamfarir og flý” Jæja mennirnir taka sér stöðu og miða á Bush en þá hrópar hann “FIRE!”
__________________________________________________