Eitt sinn kom maður inn á bar til að fá sér drykk. Þegar hann labbar að barþjóninum sér hann þessa risakrukku fylltur af 5000 kr. fyrir ofan þjóninn. Hann spyr þjónin hvað þessi krukka sé að gera þarna og Þjónnin svarar “Já málið er við erum með þetta allsvakalega veðmál í gangi hérna hefurðu áhuga?” Maðurinn neitar og fær sér bjór.

Fimmtán bjórum seinna er maðurinn á rassgatinu og labbar upp að þjóninum og segjir “Heyrðu OK og hvað er þetta veðmál sem þú talaðir um hérna áðan”? Þjóninn segjir “Já málið er þetta fyrst færð þú hérna hjá mér 1.lítra tekíla flösku og verður að taka hana í einum rykk án þess að falla í yfirlið eða æla. Síðan verður þú að fara inn í hlöðu hérna fyrir aftan og draga úr alveg kolgeðveiku nauti endajaxlinn og þegar þú ert búinn að því verður þú að fara upp og fullnægja ömmu minni”.

Maðurinn réttir barþjóninum fimm þúsund kr. og fær tekíla flöskuna og tekur hana í einum rykk og segjir síðan “ Hvar er svo þetta naut”? Þjónnin svarar “Já það er hérna fyrir aftan í hlöðuni þarna” og bendir honum á hlöðuna. Maðurinn gengur inn í hlöðuna og allir fylgjast með. Eftir að maðurinn gengur inn eru þvílíku óhljóðin í hálftíma eftirá og enginn þorir að kíkja inn svo hætta óhljóðin og maðurinn gengur út útataður í blóði og segjir “Og hvar er síðan þessi amma sem ég á að draga endajaxlin úr”.