Þennan heyrði ég fyrir nokkrum árum en veit ekki hvort hann er hér..nenni ekki að lesa alveg allt þannig að hér kemur hann:

Það var einusinni kona sem fékk upphringingu einn daginn frá lögreglunni. Sonur hennar hafði lent í hræðilegu bílslysi og stórslasast en hann var á lífi inni á gjörgæsludeild.
Konan dreif sig upp á spítala og spurði um soninn og fékk að vita að hann væri á stofu þarna lengra inn ganginn. Læknirinn bauðst til að fylgja henni. Á leiðinni leit hún inn í eina stofu og sá þar handalausann gaur sem var allur vafinn í umbúðir. “er þetta hann?” spurði konan og læknirinn neitaði því og þau héldu áfram. Í næstu stofu sá hún gaur með hvorki hendur né fætur og fékk sjokk og spurði: “er ÞETTA hann?”.. neinei sagði læknirinn, hann er í næstu stofu. Þegar þau komu í næstu stofu sáu þau höfuð í krukku sem var tengt við rafmagn. “Þetta er sonur þinn” sagði læknirinn. “en ég hef því miður slæmar fréttir að færa………………………. hann er BLINDUR!!!!”
mammaín!!