Engel er búinn að vera í fangelsi í sjö ár og nú var verið að hleypa honum út. Hulda og Vectro litli komu austur fyrir fjall til að taka á móti honum.

Þegar Engel settist inn í bílinn þá sagði hann „R.F.“ Hulda svaraði strax „B.F.“.

Þau lögðu af stað frá Hrauninu og eftir smá tíma saggði Engel „R.F.?“, en Hulda sagði „B.F.!“.

Á miðri Hellisheiðinni sagði Engel aftur „R.F.“ með miklum bænatón, en Hulda var fljót að segja „B.F.“ og það mjög ákveðið í þetta sinn.

Nú gat Vectro litli í aftursætinu ekki lengur setið á sér og spurði „Mamma, pabbi, hvað gengur á hérna?“

Engel svaraði „Mamma þín vill endilega borða fyrst.“
******************************************************************************************