Hérna er ein sniðug stand öpp pæling sem mér datt í hug í líffræðitíma:
Hvernig væri heimurinn ef fók yrði drukkið af því að hlaupa:

-Það væri bannað að hlaupa undir tvítugu
-Það væru ekki barir á skemtistöðum, heldur svona trimmform vélar (pay by the minute)
-Ólypíuleikarnir væru bara svallhátíð
-Eldborg væri hlaupabraut
-Allir helstu íþróttamenn væru rónar (picture this!)
-Það væri stranglega bannað að fara á skauta => “Ólympískir skautar” (samanber box í dag)
-Reglusamt fólk mætti alltaf of seint á áfangastað

Svo má halda áfram endalaust!
Þetta hefur slegið í gegn allstaðar þar sem ég hef reytt þessu af mér.
=)