<center>GAMLA ÚTGÁFAN:</center>
Ef þú elskar einhverja, leyfðu henni að fara. Ef hún kemur aftur, þá er hún þín. Ef hún gerir það ekki, þá var hún aldrei þín…

<center>NÝJAR ÚTGÁFUR</center>

UPPÁHALDIÐ MITT:
Ef þú elskar einhverja leyfðu henni að fara. Ef hún kemur aftur, þá er hún þín. Ef hún gerir það ekki, þá var hún aldrei þín. Ef hún situr í stofunni og étur snakk og horfir á sápuóperur, hirðir launin þín og notar símann þinn, þá ertu annaðhvort giftur henni eða hún er dóttir þín.

SVARTSÝNI MAÐURINN:
Ef þú elskar einhverja, leyfðu henni að fara. Ef hún skyldi nú einhvern tíma koma aftur, nú jæja, þá er hún þín. Ef hún gerir það ekki, þá, skítt með það, þá var hún líklega aldrei þín..

BJARTSÝNI MAÐURINN:
Ef þú elskar einhverja, leyfðu henni að fara. Engar áhyggjur, hún kemur aftur.

TORTRYGGNI MAÐURINN:
Ef þú elskar einhverja, leyfðu henni að fara. Ef hún kemur aftur, spurðu hana afhverju.

HEFNIGJARNI MAÐURINN:
Ef þú elskar einhverja, leyfðu henni að fara. Ef hún kemur ekki aftur, leitaðu hana uppi og skjóttu hana.

C++ FORRITARINN
if(you-love(m_she))
m_she.free()
if(m_she == NULL)
m_she= new CShe;

DÝRAVERNDUNARSINNINN:
Ef þú elskar einhverja, leyfðu henni að fara. Eftir allt, þá eiga öll lifandi kvikindi skilið að vera frjáls!!

BILL GATES:
Ef þú elskar einhverja, leyfðu henni að fara. Ef hún kemur aftur, muna að rukka hana fyrir nýja uppsetningu og vírusleit. Einnig er séns að hún þurfi uppfærslu.

LÍFFRÆÐINGURINN:
Ef þú elskar einhverja, leyfðu henni að fara. Hún þróast…

SCHWARZENEGGER AÐDÁANDI:
Ef þú elskar einhverja, leyfðu henni að fara. SHE'LL BE BACK!

ÞRÁHYGGJU MAÐURINN:
Ef þú elskar einhverja, ekki leyfa henni að fara.

SÁLFRÆÐINGURINN:
Ef þú elskar einhverja, leyfðu henni að fara. Ef hún kemur aftur, þá sýnir það þverrandi sjálfstæði af hennar hálfu. Ef hún gerir það ekki, þá er hún að sýna fram á að hún geti verið sjálfstæð. Ef hún fer ekki, þá hlýtur hún að vera geðveik.

SVEFNGENGILLINN:
Ef þú elskar einhverja, leyfðu henni að fara. Ef hún kemur aftur, þá er það martröð. Ef hún gerir það ekki, þá hlýtur þig að vera að dreyma.

MARKAÐSSTJÓRINN:
Ef þú elskar einhverja, leyfðu henni að fara. Ef hún kemur aftur, þá er hún trygg vörumerkinu. Ef hún gerir það ekki, kanna nýja markaði og hefja auglýsingaherferð.
Skoðanir Octavo eru hans eigin og gætu því stangast á við skoðanir annarra á Huga. Þér er velkomið að: