Hvað eiga Lincoln og Kennedy sameiginlegt? Abraham Lincoln var kosinn á þing 1846 en John F. Kennedy 1946. Abraham Lincoln var kosinn forseti árið 1860 en John F. Kennedy árið 1960. Og nöfnin Lincoln og Kennedy eru bæði mynduð af sjö stöfum.


Báðir lögðu sérstaka áherslu á mannréttindi þegnanna.

Eiginkonur beggja misstu barn þegar þær bjuggu í Hvíta húsinu.

Báðir forsetarnir voru skotnir á föstudegi.

Báðir forsetarnir voru skotnir í höfuðið.

Einkaritari Lincons hét Kennedy og einkaritari Kennedys hét Lincoln.

Báðir vour myrtir af Suðurríkjamanni.

Þeir sem tóku við forsetaembættinu af þeim voru báðir Suðurríkjamenn og hétu báðir Johnson.

Andrew Johnson, sem tók við af Lincoln, var fæddur árið 1808 en Lyndon Johnson, sem tók við af Kennedy, var fæddur árið 1908.

John Wilkes Booth, sem myrti Lincoln, var fæddur árið 1839 en Lee Harvey Oswald, sem myrti Kennedy, var fæddur árið 1939.

Báðir morðingjarnir voru þekktir af 3 nöfnum.

Nöfn þeirra beggja eru gerð úr 15 stöfum.

Lincoln var skotinn í Kennedy leikhúsinu en Kennedy var skotinn í bíl af Lincoln gerð.

Booth hljóp frá leikhúsinu og var handtekinn í vöruhúsi en Oswald hljóp frá vöruhúsi og var handtekinn í leikhúsi.

Bæði Booth og Oswald voru myrtir áður en mál þeirra voru rannsökuð fyrir dómi.

Og hér kemur svo rúsínan í pylsuendanum… Viku áður en Lincoln var skotinn var hann í Monroe, Maryland en viku áður en Kennedy var skotinn var hann með/í Marilyn Monroe.
Skoðanir Octavo eru hans eigin og gætu því stangast á við skoðanir annarra á Huga. Þér er velkomið að: