Engel er önnum kafinn í vinnunni þegar Hulda hringir „Engel minn, heldurðu að þú getir nokkuð hjálpað mér þegar þú kemur heim?“ segir hún.

Engel fær hland fyrir hjartað og fer að ímynda sér allar þær mögulegu og ómögulegu ógöngur sem Hulda gæti hafa komið sér í. „Aaa, já-já, auðvitað, elskan mín, hvað er að?“

„Jú, sko,“ segir Hulda, „Ég var að byrja á nýju púsluspili og það er svo hrikalega erfitt! Ég er ekki einu sinni búin að finna jaðarbútana ennþá.“

Vá, Engel létti heilmikið að Hulda var ekki í neinni líkamlegri hættu og húsið ekki að brenna eða eitthvað enn verra. „Sjáðu til elskan, það er alltaf mynd á kassanum af púsluspilinu til að gera þetta auðveldara. Hvað er á myndinni á kassanum?“

„Það er svona risastór hani,“ segir Hulda.

Smá þögn. „Ó-kei, sko, settu kornflögurnar aftur í kassann og svo …“
******************************************************************************************