tigris88 spurði lækninn sinn hvort hann gæti lifað það að verða eitt hundrað ára.

Læknirinn spurði „Reykirðu eða drekkur í óhófi?“

„Nei,“ sagði tigris88. „Það hef ég hvorugt gert.“

„Veðjarðu ótæpilega, ekurðu hraðskreiðum bílum á ofsahraða og eltist við kvenfólk af miklum móð?“ spurði læknirinn.

„Nei, ég hef ekki gert neitt af þessu,“ sagði tigris88.

„Ekki það, nei!“ sagði læknirinn. „Til hvers viltu þá verða hundrað ára?“
******************************************************************************************