Nýgift hjónapar höfðu nýlega flutt inn í íbúðina sína. Einn daginn þegar eiginmaðurinn kemur heim úr vinnunni kallar eiginkona hans á hann og segir við hann “Elskan, þú veist að ein pípan undir vaskinum á klósettinu lekur, ætlar þú ekki að fara að laga það?”
Eiginmaðurinn svaraði þá á móti konunni sinni “ Hvað heldurðu að ég sé, Super Maríó pípulagningamaður?

Nokkrum dögum síðar, kemur eiginmaðurinn heim úr vinnunni sinni og aftur kallar eiginkonan hans í hann og segir við hann,”Elskan, bíllinn er eitthvað bilaður en ég kem honum ekki í gang. Ég held að það þurfi nýjan rafgeymi í hann. Gætir þú nokkuð kippt þessu í lag fyrir mig?“
Húsbóndinn á heimilinu leit á konuna sína og svaraði þá á móti henni, ”Hvað heldurðu að ég sé?, einhver Gunnar bílaviðgerðamaður?

Nokkrum dagar líða aftur og það var mikill rigning sem skall þá á. Eiginkonan fann þá leka sem kom úr þakinu. Hún knébeygði sig fyrir framan eiginmann sinn þegar hann átti leið hjá og sagði, “Elskan, þakið þarna lekur! Getur þú ekki reynt að laga þetta fyrir mig?”



Hann svaraði þá á móti henni, “Hvað heldurðu að ég sé? Þórhallur húsaviðgerðamaður? og svo settist hann niður á sóffan sinn til að horfa á fótboltaleik sem var á sjónvarpsstöðinni Sýn.

Viku síðar þegar eiginmaðurinn vaknaði, var kominn hellirigning úti. En lekinn af þakinu var farinn! Talandi um leka, þegar hann fór i sturtu, fattaði hann að pípan undir vaskinum lak ekki lengur.

Konan hans kom svo akandi heim, og um leið og hún kom innfyrir, spurði eiginmaðurinn hennar ”Elskan, hvernig stendur á því að það lekur ekki neitt úr þakinu og úr vaskinum og af hverju er bílinn allt í einu kominn í lag?“

Hún svaraði þá skælbrosandi til hans til baka, ”'Ó já einn daginn var ég að ná í póstinn okkar, og ég rakst þá á einn nágrannan okkar. Hann heitir Friðjón. Þvílíkur gaur. Hann kom inn í íbúðina okkar og gerði við allt fyrir okkur.“ Vá! Segir þá eiginmaðurinn, og rukkaði hann ekkert fyrir þetta? Spyr hann þá eiginkonuna. ”Nei, hann bara sagðist ætla að gera þetta frítt ef ég bakaði fyrir hann kökur eða stundaði kynlíf með honum“, svaraði hún þá á móti.

”Svalt. Hverskonar köku bakaðir þú annars fyrir hann?“ spurði þá eiginmaðurinn hennar. ”Köku?" Hvað heldurðu að ég sé einsog? Jói Felix?