Einu sinni voru tveir menn á kaffihúsi á Íslandi, Normaður og
Íslendingur.
Íslendingurinn var að borða á kaffihúsinu. Hann var að borða brauð með
ávaxtasultu og Normaðurinn var með tyggjó. Þá labbaði Normaðurinn að
Íslendinginum og spurði: “Borðar þú skorpurnar á brauðinu”?
-Íslendingurinn: “Já auvitað. Af hverju spyrðu að þessu”.
-Normaðurinn: “Ekki við í Noregi. Við sendum þær í endurvinnslu og búum
til
brauð úr þeim og sendum til Íslands”. Eftir dálitla stund kom
Normaðurinn
aftur og spurði: “Hvað gerir þú við híðið af ávöxtunum þegar þú borðar
ávöxt”.
-Íslendingurinn: “Auðvitað hendum við því í ruslið”.
-Normaðurinn: “Ekki við. Við sendum það í endurvinnslu og búum til
ávaxtasultu úr því og sendum hana til Íslands”. Nú var Íslendingnum nóg
boðið og sagði: “Hvað gerir þú við smokkana þegar þú ert búinn að nota
þá”?
-Normaðurinn:“Auðvitað hendum við þeim í ruslið”.-Íslendingurinn: “Ekki
við. Við sendum þá í endurvinnslu og búum til tyggjó
úr þeim og sendum til Noregs”.