Einu sinni sagði Siggi við Gumma: Veistu hvað það er til eitthvað stórt leyndarmál sem allt fullorðið fólk á. Gummi varð mjög forvitinn við þetta og ákvað að prufa það á mömmu sinni.
Gummi: “Heyrðu mamma ég veit stóra leyndarmálið”
Mamma: “Ha er það… Ef þú segir pabba þínum það ekki skal ég gefa þér 1000 kr.
Gummi varð mjög ánægður og sagði strax já.
Næst sagði hann við pabba sinn ”Ég veit stóra leyndarmálið“
Pabbi hans fékk hálfgert sjokk og ussaði á hann og sagði lágt ”Ef þú segir ekki mömmu þinni skal ég gefa þér 2000 kr.
Nú varð Gummi mjög ákafur í að segja þetta við einhvern annan fullorðinn og hljóp að póstmanninum og segir “Ég veit stóra leyndarmálið”. Pósturinn verður dálítið hissa en leggur svo frá sér pokann og segir "KOMDU ÞÁ OG FAÐMAÐU HANN PABBA ÞINN !!!

Steinia
Kv, Steini