Hljómsveitarstjóri í lítilli skólalúðrasveit var í vandræðum með að fá trommuleikarann til að spila í takt við hina. Hann ræddi við hann, tók hann í einkatíma en áhuginn á að gera vel var ekki til staðar.


Að lokum tók gafst hann upp og kallaði saman hljómsveitina til að gera þeim grein fyrir vandanum því ljóst var að það þyrfti nýjan trommuleikara. Hann byrjaði á að segja við hópinn: “Þegar tónlistarmaður getur ekki spilað almennilega er hann látinn fá tvö prik og gerður að trommuleikara.”


Lengra komst hljómsveitarstjórinn ekki því eitthvert barnanna hélt áfram: “Og geti menn ekki spilað á trommur er annað prikið tekið og menn gerðir að hljómsveitarstjóra.”
******************************************************************************************